Hugmyndafræðin á bak við alla okkar þjálfun og þjónustu er afar einföld: Að leiðbeina og aðstoða einstaklinga, lið/fyrirtæki og íþróttafólk við að hámarka árangur sinn og afkastagetu með markvissri, fjölbreyttri og sérsniðinni þjálfun. Þjálfun sem byggir á þörfum, getu og markmiðum hvers og eins.
Okkar sannfæring er að árangur verði aldrei mældur í íþrótta- og æfingatengdum klukkustundum einum og sér - heldur réttu jafnvægi milli æfingaálags, endurheimtar og næringar. Þegar hámarksárangur, vellíðan og afkastageta er markmiðið þarf þjálfun okkar að taka mið af öllum þessum þáttum sem og mannlegri nálgun - frekar enn að horfa bara í æfingafyrirkomulag, -magn og -ákefð.
Biggi eða Coach Birgir er einn af reynslumeiri þjálfurum landsins og hefur á sl. 30 árum starfað með þúsundum einstaklinga, auk íþróttaliða og fyrirtækja í átt að betra líkamlegu formi, árangri, afköstum og bættri heilsu.
Hann er menntaður sem einkaþjálfari, íþróttatengdur næringaráðgjafi og lífvörður auk þess að hafa lokið fjölmörgum námskeiðum og diplómum tengt ólíkum styrktarþjálfunarleiðum, bardagaíþróttum og hlaupaþjálfun.
Hann er ekki þjálfarinn sem "bara" kennir heldur hefur hann sjálfur prófað og tekið þátt í allskyns þrekáskorunum, sérsveitarnámskeiðum, ultrahlaupum, maraþonum auk ótal annarra þrekrauna sem reyna hvort í senn á líkamlegan og andlegan styrk. Hann veit hvað það er mikilvægt að stíga reglulega út fyrir þægindarammann, ögra "normunum" sem við eigum öll til að festast í og prófa nýjar leiðir og nálganir.
Gerir þetta viðhorf hann ekki bara að frábærum þjálfara, heldur einstökum leiðtoga og leiðbeinandi sem "fylgir því sem hann kennir" alla daga alltaf!
Í okkar huga er ekki síður mikilvægt að byggja upp sterkan huga, samhliða sterkum líkama því eins og við vitum öll sem hafa stundað íþróttir á háu stigi - þú kemst aldrei lengra en hugurinn er tilbúinn að fara og trúa á! Sama hvað formið er gott og getan mikil.

Linda er menntuð rekstrar- og alþjóða markaðsfræðingur og starfaði sem slík ásamt því að stofna og reka eigin fyrirtæki allt þar til fjölskyldan flutti til Kaupmannahafnar fyrir um 11 árum síðan.
Þrátt fyrir að hafa allt sitt líf stundað ólíkar íþróttir og æfingaform, tekið þátt í allskyns þrekmótum, keppnum og hlaupum þá var það ekki fyrr en árið 2020 sem hún raunverulega breytti um stefnu og fór að vinna við einka- og fjarþjálfun sem og heildræna heilsuráðgjöf.
Eftir að hafa dustað rykið af 15 ára gamalli einkaþjálfaramenntun hefur hún bætt við sig námi og diplómu í heilsu-, tauga- og hormónatengdri markþjálfun og ætlar sér meira á því sviðinu samhliða því að sinna áfram fjarþjálfun bæði einstaklinga og hópa/fyrirtækja.
Í tengslum við sínar eigin áskoranir og þörf fyrir nýja æfinga- og heilsunálgun tengt hormónasveiflum á breytingaskeiði, hefur hún viðað að sér miklum fróðleik og gert tilraunir á eigin líkama og líðan með það að markmiði að miðla og hjálpa konum í sömu sporum.
Saman sköpum við öflugt teymi með víðtæka reynslu og þekkingu sem brennur fyrir því að aðstoða og hvetja fólk og liðsheildir áfram í átt að auknum árangri og betri líðan.