Einbeittu þér að því að styrkjast, eflast og koma æfingarútínunni í fastar skorður.

Ekki láta stöðuna eins og hún er í dag stoppa þig

Við heyrum mjög oft frá okkar viðskiptavinum, að þeir verði að vera komnir í aðeins fastari æfingarútínu eða aðeins betra form áður en þau geti byrjað í þjálfun hjá okkur.

Þetta er alls ekki rétt - því okkar upphafspunktur og þjálfunarviðmið er alltaf formið og líkamsástandið sem þú ert í núna. Sumir geta verið á algjörum byrjunarreit á meðan aðrir hafa íþrótt sína að atvinnu.

Þegar allt kemur til alls þá koma allir til okkar af sömu ástæðu. Hlutirnir eru einfaldlega ekki að virka og þeim vantar utanaðkomandi yfirsýn og faglega ráðgjöf. Árangur er nefnilega aldrei bara "EINN" fastur þáttur sem við getum einbeitt okkur að og gert betur. Árangur tengist mörgum og ólíkum heilsuþáttum sem við þurfum að vinna með og jafnvægisstilla mjög markvisst og reglulega.

Ákkúrat þarna erum við virkilega góð! Að sjá og ná utanum heildarmyndina og fá öll þessi ólíku púsl til að falla saman og skapa aðstæður til bætinga og aukins árangurs!

Ef þú ert tilbúin að taka skrefið framávið - hvort sem er til að bæta daglega líðan, verða sterkari, orkumeiri og öflugri einstaklingur eða ná enn meiri árangri í þinni íþrótt eða atvinnu - ekki hika við að heyra í okkur!

Við lofum að það eina sem þú munt sjá eftir, er að hafa ekki byrjað fyrr!

Ummæli og árangurssögur!

Ekkert segir meira en ánægðir viðskiptavinir að ná árangri. Hér eru því nokkur:

“Ég er búin að missa helling af fitu sl. mánuði - var 79kg en er núna 72.5kg.
Er vön að rífa svona af mér reglulega og geri það með því að svelta mig og hlaupa en líður ekkert sérstaklega vel meðan á því stendur (er ýkt að öllu leiti og ét því að kappi líka þegar ég í í þeim gírnum).
En þú sagðir við mig: Fyrst kemur formið -svo fylgir hitt, svo nú ákvað ég að þú værir atvinnumaðurinn og í þetta sinn ætlaði ég ekki að vera ýkt, heldur fylgja þínum fyrirmælum.
Nú borða ég venjulega og líður rosalega vel.. svo enn og aftur TAKK elsku, besti Birgir! Þú ert búinn að gera meira fyrir mig en ég held þú gerir þér grein fyrir. ”

Hlaupari og hestaræktandi

Úlfhildur Ída Helgadóttir

“Ég hef það dásamlegt, takk fyrir! Þið Linda vitið ekki hvað þið gerið mikið fyrir manneskju eins og mig. Ég vil helst æfa ein og á þeim tíma sem hentar mér. Ég vakna alltaf mjög snemma, vil byrja snemma að vinna og hætta snemma. Er bara ekki í stuði fyrir hlaupahóp rétt fyrir kvöldmat :-) og það sama á við styrktaræfingar. Vil vera á mínu tempói og laus við að þurfa að taka tillit til annarra. Um leið er það gríðarleg hvatning á fá sendar æfingar og ég bara fylgi og hlýði - er svo vel uppalin. :-)
Takk enn og aftur!”

Hlaupari og útvarpskona

Guðrún Hálfdánardóttir

“Ég mæli heilshugar með Coach Birgir! Æfingarnar og æfingafyrirkomulagið sem hann bíður upp á er fjölbreytt, skemmtilegt og svolítið öðruvísi en ég er vanur. Með honum hefur mér fundist gaman að styrkjast og mæta í ræktina en hingað til hefur það verið sá hluti atvinnumennskunnar sem mér hefur fundist hvað leiðinlegastur.”

Atvinnumarkmaður í fótbolta hjá FCK

Runar Alex Runarsson

“Whether the focus is on overcoming small injuries here and there - that always come up in my field of sport - or prepare me physically and mentally for a game, Coach Birgir´s coaching is always spot on due to his great knowledge and experience as a trainer. The program and workouts are always fresh and diverse so I never get bored.”