HEILSU-, ÁRANGURS- & LÍFSSTÍLSRÁÐGJÖF

Þegar við þörfnumst þess að kafa bæði heildrænt og djúpt með líkama og hugarfar - þá er þetta tvímælalaust lausin!

Að líða vel, vera afkastamikil og ná árangri, kemur ekki af sjálfu sér. Það krefst þess að við séum stöðugt á tánum, förum reglulega út fyrir þægindarammann og horfum heiðarlega á okkur sjálf! Jafnvel þótt það geti bæði verið erfitt, óþægilegt og krefjist þess að við leitum okkur liðsinnis og aðstoðar.

Þetta þekkjum við og höfum í gegnum árin setið báðum megin borðsins í slíkum verkefnum. Eitthvað sem við metum hvað mest í eigin fari og horfum á sem okkar stærstu blessanir og þroskakúrfur.

Það er nefnilega á botninum sem mesta viðspyrnan á sér stað!

Þegar við upplifum að hlutirnir geti ekki versnað mikið meira og það kviknar einhver óútskýranlegur baráttukraftur og seigla! Við verðum allt í einu tilbúin að berjast og gera það sem gera þarf til að snúa blaðinu við! Ef þú ert á þessum stað - til hamingju - það er núna sem hlutirnir fara loksins að gerast!

Í gegnum árin höfum við aðstoðað íþróttafólk, fyrirtækjastjórnendur og einstaklinga með allskyns áskoranir tengt álagi, árangri, afköstum, endurheimt og daglegri líðan.
Sumir eru hreinlega að gera alltof mikið á meðan aðrir þurfa að bæta í eða fókusera á aðra og nýja þætti.

Svo allt gangi upp og virki eins og það á að gera, þarf nefnilega ótrúlega margt að falla rétt og vel saman. Púsluspil þar sem hvert og eitt púsl hefur sinn ákveðna tilgang, tíma og stað svo rétt útkoma náist.

Ef þú vilt fá aðstoð okkar við að raða þínu púsli betur saman - heyrðu í okkur! Hver veit hvað það mun leiða af sér?

Verð:

Einn tími: 24.900 kr.
Fjórir tímar: 84.600 kr.
Fjórir tímar + 6 vikna einstaklingsmiðuð æfingaáætlun: 98.900 kr.